02. júlí 2021

UNICEF gerir samning við Janssen um bóluefni gegn COVID-19

UNICEF hefur skrifað undir samning við lyfjaframleiðandann Janssen sem tryggir allt að 200 milljónir skammta af bóluefninu á árinu 2021. Samningurinn er sá fjórði sem UNICEF gerir fyrir hönd COVAX samstarfsins

UNICEF hefur skrifað undir langtímasamning við lyfjaframleiðandann Janssen um aðgengi að COVID-19 bóluefni fyrir hönd COVAX samstarfsins. Samningurinn tryggir allt að 200 milljónir skammta af bóluefninu á árinu 2021, með möguleika á að afhenda 300 milljónir skammta árið 2022. Einungis þarf einn skammt af Janssen bóluefninu sem kemur sér einstaklega vel fyrir auðveldari dreifingu í efnaminni ríkjum. Samningurinn við Janssen er fjórði samstarfssamningurinn sem UNICEF gerir, en áður var búið að skrifa undir samninga við Pfizer, Serum Institute of India og AstraZeneca. Afhending á bóluefni Janssen mun hefjast á þriðja ársfjórðungi.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir innkaup og dreifingu bóluefna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins en COVAX er samstarf um 190 ríkja sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efnis gegn COVID-19. Markmið COVAX-samstarfsins er að tryggja um 2 milljarða skammta af bóluefni fyrir lok ársins 2021. Samstarfið hefur nú þegar skilað 93 milljónum skammta af bóluefni til 134 ríkja og svæða í heiminum

Komum því til skila!
Bóluefnum gegn COVID-19 er mjög misskipt meðal ríkja heimsins en sem dæmi má nefna að einungis er 1% af íbúum Afríku fullbólusettur. Ef efnaminni ríki heimsins eru skilin eftir er hætta á að ný afbrigði veirunnar breiðist hratt út bæði innan þeirra og til annarra ríkja. UNICEF hefur því sent út alþjóðlegt ákall þar sem skorað er á efnameiri ríki heims að gefa umframskammta sína strax í sumar. Nú þegar hafa nokkur efnameiri ríki svarað ákallinu og með samningnum við Janssen munu afhendingar og dreifing á bóluefni við COVID-19 aukast til muna á næstunni.

Fjáröflunarátak UNICEF á Íslandi, "Komum því til skila" stendur enn yfir. Hægt er að senda SMS-ið COVID í númeriði 1900 (1900 krónur) og þar með tryggirðu dreifingu á bóluefni við COVID-19 fyrir þrjá einstaklinga i efnaminni ríkjum

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn