01. október 2026

UNICEF kallar eftir áframhaldandi stuðningi við börn í Jórdaníu

Minnkandi fjárframlög ógna nú getu til að veita viðkvæmustu börnum nauðsynlega þjónustu.

Börn í Jordan River Foundation félagsmiðstöðinni í Amman. Mynd: UNICEF/UN0934132/Haddad

Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, lauk í vikunni tveggja daga heimsókn sinni til Jórdaníu. Hún fagnaði þeim árangri sem náðst hefur í þágu barna í landinu og kallaði eftir áframhaldandi stuðningi til að viðhalda honum á tímum samdráttar í fjárframlögum.

Í heimsókninni hitti Russell börn í félagsmiðstöð Jordan River Foundation, þar sem UNICEF og stofnunin vinna saman að því að veita börnum í viðkvæmri stöðu stuðning, vernd og tækifæri til náms. Hún fundaði einnig með menntamálaráðherra og ráðherra mannauðsþróunar, dr. Azmi Mahafzah, og félagsmálaráðherra, Wafa Bani Mustafa, um þarfir barna í Jórdaníu.

„Jórdanía hefur náð eftirtektarverðum árangri í þágu barna,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „UNICEF mun halda áfram að styðja við aðgerðir stjórnvalda til að tryggja að börn hafi ekki aðeins aðgang að skólagöngu heldur öðlist þar góða menntun sem skapi þeim tækifæri til framtíðar og þátttöku á vinnumarkaði. Við munum einnig styðja við uppbyggingu félagslegra verndarkerfa þannig að þau greiði börnum leið að mikilvægri grunnþjónustu, með sérstakri áherslu á börn með fötlun.“

Nær öll börn í Jórdaníu ganga í grunnskóla og lög um réttindi barna frá 2022 tryggja réttindi þeirra í landslögum. Þrátt fyrir það býr um eitt af hverjum sjö börnum við fjölþætta fátækt og hefur ekki tryggan aðgang að grunnþjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu og menntun. Nær þrjú af hverjum fjórum börnum á aldrinum eins til 14 ára verða fyrir ofbeldisfullum uppeldisaðferðum á heimili sínu og um 39 prósent ungs fólks eru án atvinnu.

Jórdanía hefur jafnframt tekið á móti miklum fjölda sýrlenskra flóttamanna. Þegar átökin í Sýrlandi stóðu sem hæst höfðu um 1,3 milljónir flóttamanna leitað skjóls í landinu. Þúsundir hafa snúið aftur en margir eru enn í Jórdaníu og þurfa áfram stuðning alþjóðasamfélagsins.

Minnkandi fjárframlög ógna nú getu til að veita viðkvæmustu börnum nauðsynlega þjónustu. UNICEF hvetur því alþjóðlega styrktaraðila til að tryggja áframhaldandi, sveigjanlegan langtímastuðning sem styrkir þjónustukerfi Jórdaníu og tryggir að þau þjóni öllum börnum.

Þú tekur þátt í ótal fjölbreyttum verkefnum UNICEF í þágu barna um allan heim þegar þú ert Heimsforeldri UNICEF. Skráðu þig hér í dag.

Fleiri
fréttir

01. október 2026

UNICEF: Börn þurfa að vera í forgrunni við uppbyggingu Sýrlands
Lesa meira

01. október 2026

UNICEF kallar eftir áframhaldandi stuðningi við börn í Jórdaníu
Lesa meira

30. september 2026

Fjölskyldur í Líbanon eiga í erfiðleikum með að framfleyta sér
Lesa meira
Fara í fréttasafn