04. júní 2025

UNICEF og WFP fordæma árás á bílalest með mannúðaraðstoð í Súdan

Sameiginleg yfirlýsing UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

„Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna fordæma árás á sameiginlega bílalest stofnananna með mannúðaraðstoð og birgðir nærri Al Koma í Norður-Darfur á mánudagskvöld. Fimm einstaklingar létu lífið í árásinni og fleiri slösuðust. Nokkrir vörubílar voru brenndir og mikilvægar mannúðarbirgðir skemmdust.

Bílalestin, sem samanstóð af 15 vörubílum, var á leið til að ná til barna og fjölskyldna á hungursneyðarsvæðum í El Fasher með lífsnauðsynlegar fæðu- og næringarbirgðir. Eftir margra mánaða stigvaxandi ofbeldi eru hundruð þúsunda íbúa í El Fasher – þar af mörg börn – í mikilli hættu á vannæringu og hungri ef birgðir berast ekki tafarlaust.

Eins og venja er með slíkar sendingar var leiðin tilkynnt fyrirfram og aðilar á svæðinu upplýstir og meðvitaðir um staðsetningu bílanna. Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum ber að vernda hjálpargagnaflutninga og aðilar hafa skyldu til að leyfa og greiða fyrir skjótum og hindranalausum aðgangi að mannúðaraðstoð fyrir almenna borgara í neyð.

Báðar stofnanir krefjast þess að árásum á mannúðarstarfsfólk, starfsstöðvar þeirra og ökutæki verði tafarlaust hætt – slíkt brýtur í bága við alþjóðleg mannúðarlög.

Við köllum eftir tafarlausri rannsókn og að þeir sem ábyrgir eru verði látnir svara til saka.

Við sendum fjölskyldum hinna látnu samúðarkveðjur og sendum öllum slösuðum stuðnings- og batakveðjur. Það er sömuleiðis skelfilegt til þess að vita að þessar mikilvægu birgðir hafi ekki náð til þeirra barna og fjölskyldna sem þær voru ætlaðar. Sendinefndin hafði ferðast yfir 1.800 km frá Port Sudan og við vorum að semja um aðgang til að ljúka ferðinni til El Fasher þegar árásin átti sér stað.

Þetta atvik bætist við röð árása gegn mannúðaraðgerðum síðustu tvö ár, þar á meðal loftárás í síðustu viku á aðstöðu WFP í El Fasher þar sem verkstæði, skrifstofubygging og heilsugæsla skemmdust.

Árásir á mannúðarstarfsfólk, aðstoð, aðgerðir, sem og á almenna borgara og borgaralega innviði í Súdan, hafa haldið áfram of lengi án afleiðinga. Starfsfólk WFP og UNICEF er enn á svæðinu þrátt fyrir erfiðar aðstæður og ógnir, en krefst öruggra starfsaðstæðna og þess að alþjóðleg mannúðarlög séu virt af öllum aðilum. Líf milljóna einstaklinga í Súdan, þar á meðal í borgum eins og El Fasher í Darfur, eru undir þessu komið.“

–Sameiginleg yfirlýsing UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

Fleiri
fréttir

04. júní 2025

UNICEF og WFP fordæma árás á bílalest með mannúðaraðstoð í Súdan
Lesa meira

02. júní 2025

Akranes hlýtur viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag
Lesa meira

28. maí 2025

„Tortíming lífs á Gaza“
Lesa meira
Fara í fréttasafn