10. júní 2026

Við stöndum vaktina í viðsjárverðum heimi

Ávarp Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, í ársskýrslu landsnefndarinnar 2025.

Árið 2025 mun líklega marka vendipunkt í sögu alþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Áttatíu ára afmæli Sameinuðu þjóðanna (SÞ) átti að vera tilefni til uppbyggilegrar rýni á tilgangi, starfsemi og framtíð stofnunarinnar en endaði í sárri tilvistarkreppu, þar sem framhald heilu undirstofnananna var í húfi og sömuleiðis starf þeirra í þágu lífs, réttinda og velferðar milljóna manna um allan heim. Ástæða kreppunnar var ákvarðanir bandarískra og annarra vestrænna stjórnvalda, sem hafa myndað burðarvirki alþjóðlegrar þróunarsamvinnu með fjárframlögum sínum til þessa, að minnka stuðninginn um tugi prósenta í misdramatískri framkvæmd.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ein stærsta og umfangsmesta undirstofnun SÞ, var því miður ekki undanskilin þessari þróun. Síðasta ár var tímabil sársaukafullrar endurskoðunar, uppstokkunar og uppsagna – þrátt fyrir sívaxandi þörf fyrir þjónustu UNICEF í þágu barna. Barnahjálpin stóð áhlaupið þó betur af sér en flestar aðrar undirstofnanir SÞ vegna sjálfstæðrar og öflugrar fjáröflunarstarfsemi landsnefndanna 32 og þeirra milljóna Heimsforeldra og annarra styrktaraðila sem styrkja lífsbjargandi starfið með reglubundnum framlögum. Saman leggja landsnefndirnar rúmlega tvo milljarða dollara inn í starfsemi UNICEF á hverju ári og það munar um minna.

Íslenskir Heimsforeldrar – og íslensk stjórnvöld - héldu áfram að skipta sköpum með trúsemi sinni og fjárfestingu í starfi UNICEF fyrir öll börn. Þegar á reyndi þá hvikuðum við ekki. Landsnefnd UNICEF á Íslandi náði enn á ný frábærum árangri í fyrra, með söfnun styrkja frá einstaklingum og fyrirtækjum sem stóðu þétt við bakið á málstaðnum, með virku og víðtæku réttindastarfi í sveitarfélögum, skólum, félags- og frístundamiðstöðvum og leikskólum, öflugu málsvarastarfi gagnvart stjórnvöldum og kynningarstarfi sem náði í gegnum upplýsingaþreytuna. Íslensk stjórnvöld fylgdu ekki fjölmörgum nágrannaríkjum heldur skáru sig úr með stöðugum og jafnvel hækkandi framlögum til UNICEF og alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og mannúðarstarfs heilt yfir.

Því þegar upp er staðið þá er besta framlag Íslands jafnan að vera góð fyrirmynd. Íslenskur almenningur getur ekki gefið á við auðmenn, íslensk fyrirtæki ekki á við alþjóðlegar samsteypur og íslensk stjórnvöld ekki á við stórveldi – en við getum stigið upp og svarað kallinu saman um réttsýni, sanngirni, jöfnuð og von fyrir öll börn. Sömuleiðis geta sveitarfélög, skólar og aðrir sem vinna fyrir börn innleitt Barnasáttmálann í starfsemi sína og þannig staðið með réttindum barna til skemmri og lengri tíma. Því heimur sem þekkir og virðir réttindi barna er friðsæll heimur.

Árið 2025 hrikti í grunnstoðum þróunarsamvinnu og mannúðarstarfs í hættulegum og ójöfnum heimi. Þegar ég lít yfir árið fyllist ég engu að síður stolti yfir viðbrögðunum hér og horfi, þrátt fyrir allt, bjartsýn fram á veginn. Landsnefnd UNICEF á Íslandi og hennar ótal samstarfsaðilar um betri framtíð fyrir öll börn standa vaktina. Við þekkjum okkar hlutverk og erum hvergi bangin.

-----------------------

Þú finnur þetta ávarp og margt fleira í ítarlegri yfirferð yfir síðasta rekstrarár landsnefndar UNICEF á Íslandi í ársskýrslunni okkar sem komin er út. Smelltu hér til að lesa.

Fleiri
fréttir

10. júní 2026

Við stöndum vaktina í viðsjárverðum heimi
Lesa meira

09. júní 2026

Svona var árið 2025 hjá UNICEF á Íslandi 
Lesa meira

01. júní 2026

Ársfundur UNICEF á Íslandi 2026
Lesa meira
Fara í fréttasafn