02. mars 2026

UNICEF: Virðið alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög

Yfirlýsing UNICEF vegna stigmögnunar í Mið-Austurlöndum

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sendi á laugardagskvöld frá sér yfirlýsingu í kjölfar árása sem hófust í Mið-Austurlöndum um helgina. Er hún hér birt í heild sinni:

„Hernaðarleg stigmögnun í Mið-Austurlöndum um helgina í markar hættulegt augnablik fyrir milljónir barna á svæðinu. UNICEF lýsir yfir þungum áhyggjum yfir fréttum um loftárásir í Íran og víðar á svæðinu, sem sýna hversu alvarleg hættan er fyrir börn. Greint hefur verið frá því að skólar hafi orðið fyrir árásum í Íran, þar á meðal stúlknaskóli í Minab í Hormozgan-héraði í suðurhluta Írans. Tugir nemenda eru sagðir hafa látist og margir aðrir slasast.“

„UNICEF tekur undir ákall aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust vopnahlé og að dregið verður úr spennu og stigmögnun. UNICEF hvetur jafnframt alla aðila til að sýna ítrustu aðgát og standa við skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og mannréttindalögum, þar á meðal að vernda almenna borgara og þá grunnþjónustu sem börn reiða sig á til að lifa af. Að beina árásum að almennum borgurum og borgaralegum mannvirkjum, þar á meðal skólum, brýtur gegn alþjóðalögum.“

„UNICEF, í samstarfi við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna og mannúðarsamtök, metur nú stöðuna og er reiðubúið að auka stuðning við börn sem orðið hafa fyrir áhrifum og fjölskyldur þeirra sé þess óskað.“

Fleiri
fréttir

28. apríl 2026

Hörmungar barna í Darfur meiri í dag en fyrir 20 árum– en fá litla athygli nú
Lesa meira

21. apríl 2026

800 börn sýna samstöðu í verki á myndlistarsýningu UNICEF í Hörpu
Lesa meira

15. apríl 2026

UNICEF á Íslandi og utanríkisráðuneytið endurnýja samstarfssamning
Lesa meira
Fara í fréttasafn