05. maí 2026

Von í poka fyrir vannærð börn: Kraftaverkamaukið enn að bjarga lífum 30 árum síðar

Næringarríka og vítamínbætta jarðhnetumaukið sem olli straumhvörfum í meðferð vannærðra barna um allan heim fagnar 30 ára afmæli. Milljónir barna þurfa enn á því að halda. 

Næringarríka jarðhnetumaukið er enn í dag besta, fljótlegasta og hagkvæmasta úrræðið sem til er í baráttunni við alvarlega vannæringu barna.

Þið hafið vafalaust heyrt okkur tala um það og ef þið eruð að lesa þetta þá eru yfirgnæfandi líkur á að þið hafið á einhverjum tímapunkti keypt Sanna gjöf sem inniheldur næringarríka jarðhnetumaukið. Þessir litlu pokar af kraftaverkamauki, sem fyrir 30 árum gjörbreyttu baráttunni við vannæringu barna í heiminum, eru enn í dag öflugasta og ódýrasta meðferðarúrræðið sem til er í þeirri baráttu. Jarðhnetumaukið er svo sannarlega von í poka.   

Og vonin þarf hvorki stórar umbúðir né að kosta mikið. Í dag fögnum við stórafmæli þessarar ótrúlegu uppfinningar sem bjargað hefur milljónum lífa síðustu þrjá áratugi og mun halda því áfram um ókomna tíð. Í dag þjást rúmlega 12 milljónir barna af alvarlegri rýrnun, sem er alvarlegasta og banvænasta birtingarform vannæringar. Ekkert þessara barna ætti að þurfa að þjást og láta lífið vegna hungurs og vannæringar, því lausnin og lækningin er til og er bæði einföld og ódýr. 

Um uppruna næringarmauksins Plumpy‘Nut og hvernig barnanæringarfræðingurinn André Briend uppgötvaði það árið 1996 má lesa hér.   

Ekkert barn á að þurfa að þjást vegna hungurs og banvænnar vannæringar. Lausnin er til staðar, það eina sem þarf er vilja til að aðstoða þau.

Næringarmaukið góða gengur í dag undir samheitinu Ready-to-Use-Therapeutic Food, oftast skammstafað RUTF og betur þekkt þannig. Um árabil hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna verið stærsti kaupandi að RUTF í heiminum.  

Það er vegna þess að RUTF er algjör snilld! Lítum á nokkrar staðreyndir: 
  • RUTF er búið til úr jarðhnetum, undanrennudufti, olíu, sykri og bætt með nauðsynlegum steinefnum og vítamínum.  
  • 92 gr. poki af RUTF inniheldur 500 hitaeiningar sem hjálpar alvarlega vannærðum börnum að þyngjast fljótt og byggja upp ónæmiskerfið meðan á meðferð stendur. Og svo heppilega vill til að hið sæta og ljúffenga bragð af hnetumauki nýtur alþjóðlegrar hylli og er afar vinsælt hjá börnum sem elska að borða það.  
  • RUTF inniheldur ekkert vatn fyrir bakteríur til að vaxa í, hefur mikið geymsluþol, líka við mikinn hita og raka, það þarf ekki að geyma pokana í kæli og hægt er að neyta innihaldsins beint úr pakkanum án allra áhalda, eldunaraðstöðu og aðgengi að hreinu vatni. Fullkomið fyrir hvort heldur sem er neyðaraðstæður eða afskekktustu svæði veraldar.  
  • Frábær árangur. 90% þeirra sem þjást af alvarlegri bráðavannæringu ná bata eftir að hafa fengið meðferð með RUTF. 
  • RUTF er eina göngudeildarmeðferðin sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, mælir með við rýrnun barna. 
  • Kassi af RUTF inniheldur 150 poka sem er nóg til að meðhöndla vannært barn í 6-8 vikur þar til það nær fullum bata. (Samhliða eftirfylgni hjá lækni og ráðgjöf.)  
  • Hver poki kostar innan við 49 krónur! 

 

Ástæður þess að við þurfum RUTF og nóg af því! Lítum á enn fleiri staðreyndir: 
  • Börn sem glíma við alvarlega rýrnun eru of grönn miðað við hæð, ónæmiskerfi þeirra orðið svo veikburða að hefðbundnar umgangspestir barna geta reynst þeim banvænar og eru þessi börn tólf sinnum líklegri til að deyja en vel nærð börn.  
  • Í dag glíma 42,8 milljónir barna í heiminum við rýrnun, þar af 12,2 milljónir við alvarlega rýrnun sem er banvænasta form vannæringar.  
  • Árið 2025 skimaði UNICEF 255 milljónir barna á heimsvísu fyrir vannæringu og veitti rúmlega 9 milljónum barna meðferð. 
  • UNICEF er stærsti einasti kaupandinn að RUTF í heiminum og vinnur með 21 framleiðanda og birgjum víðs vegar um heiminn.  
  • Frá 2003-2025 útvegaði og afhenti UNICEF alls 8.7 milljarða poka af RUTF og tryggði þannig bata milljóna barna.  
  • Árið 2023 afhenti UNICEF 1,1 milljarð poka af RUTF í næringarviðbragði í kjölfar heimsfaraldurs COVID 19. Aldrei fyrr hefur öðru eins magni verið dreift.  
  • Stærsta hlutfall næringarfæðisins sem UNICEF útvegar fer til Eþíópíu, þar sem 500 þúsund börn fá árlega meðferð við alvarlegri rýrnun.  

Skráðu þig sem Heimsforeldri í dag og taktu þátt í því að veita vannærðum börnum þá lækningu sem þau eiga rétt á. SMELLTU HÉR.  

Fleiri
fréttir

05. maí 2026

Von í poka fyrir vannærð börn: Kraftaverkamaukið enn að bjarga lífum 30 árum síðar
Lesa meira

04. maí 2026

UNICEF: Innflytjendakerfi og stefna verða að tryggja réttindi barna 
Lesa meira

28. apríl 2026

Hörmungar barna í Darfur meiri í dag en fyrir 20 árum– en fá litla athygli nú
Lesa meira
Fara í fréttasafn