29. apríl 2022

Zontaklúbbar gefið alls 700 þúsund krónur í neyðarsöfnun vegna Úkraínu

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, færði þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, ásamt fulltrúum Zonta á Íslandi. Mynd/UNICEF

UNICEF á Íslandi barst sannarlega vegleg gjöf í dag þegar fulltrúar Zonta á Íslandi komu og gáfu 400 þúsund krónur í neyðarsöfnun UNICEF vegna Úkraínu. Áður hafði Zontaklúbburinn Embla lagt 300 þúsund krónur í sömu söfnun. Heildargjöf Zonta á Íslandi nemur því 700 þúsund krónum.

Zonta eru alþjóðasamtök með meðlimi um allan heim, meðal annars í Úkraínu, og helga sig vinnu við að auka skilning, velvilja og frið með alheimsaðild meðlima og stuðla að réttlæti og alþjóðlegri virðingu fyrir mannréttindum og grundvallarfrelsi. Sigríður Björnsdóttir, svæðisstjóri Zonta á Íslandi segir að samtökin fordæmi harðlega erlenda árás og stríðstilburði líkt og sjáist í Úkraínu nú um stundir.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, tók á móti fulltrúum Zonta á Íslandi á skrifstofu UNICEF í dag og færði þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Í tilkynningu frá Zontasamtökunum segir:

„Við vitum að á átaka- og stríðstímum eru konur og stúlkur, sérstaklega þær sem hafa hrakist af heimilum sínum, í aukinni hættu á að verða fyrir kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi. Konur bera einnig aðalbyrðina við að halda fjölskyldum sínum saman, við að tryggja öryggi og velferð barna sinna og við að takast á við tilfinningalegan og líkamlegan skaða til langs tíma sem stríðið hefur valdið.

Þar sem konur og börn fara frá Úkraínu til nágrannalanda hvetjum við alheimsmeðlimi okkar til að nota raddir sínar til að berjast fyrir þeim, til að tryggja að öryggi og velferð kvenna og stúlkna sé í fararbroddi mannúðarviðbragða.

Við vitum einnig að meðlimir okkar eru örlátir og vilja styðja beint við íbúa Úkraínu og nauðsynlegar þarfir þeirra. Þar sem alþjóðasamtök Zonta eru ekki staðsett til að veita fyrstu hjálp hafa Zontasamtökin hvatt sína meðlimi til að styrkja hjálparsamtök líkt og UNICEF sem eru þegar starfandi á svæðinu í Úkraínu og í nágrannalöndum sem taka við flóttamönnum.

Með þessum orðum viljum við afhenda UNICEF styrk frá Zontasambandi Ísland kr. 400.000.“

UNICEF á Íslandi færir öllum meðlimum Zonta á Íslandi hjartans þakkir fyrir stuðninginn sem mun koma sér vel í umfangsmiklum verkefnum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna ástandsins í og við Úkraínu.

Við minnum einnig á neyðarsöfnun okkar vegna Úkraínu sem enn stendur yfir og hægt er að styrkja hér.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn