Sannar gjafir UNICEF eru fyrir löngu orðnar ómissandi liður í jólaundirbúningi þúsunda landsmanna sem vilja gleðja fjölskyldu og vini með gjöf sem aldrei gleymist. Nú hafa gjafabréfin okkar fengið nýtt og fallegt útlit svo enn skemmtilegra er að gefa þau og þiggja en nokkru sinni fyrr. Umslög gjafabréfanna hafa einnig verið endurhönnuð og eru sérlega glæsileg.
Það sem er þó áfram óbreytt eru gjafirnar sjálfar, hugurinn að baki þeim og kraftaverkin sem við í sameiningu vinnum í þágu barna um allan heim með stuðningi þínum.
Þegar þú kaupir Sanna gjöf styrkir þú hjálparstarf UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, færð fallegt gjafabréf með ljósmynd (þú getur líka hlaðið upp þinni eigin mynd) og getur skrifað persónulega kveðju til viðtakanda. Með styrknum leggur þú þitt af mörkum svo UNICEF geti útvegað börnum næringu, hreint vatn, lyf, skjól og menntun þar sem neyðin er mest.
Gefðu gjöf sem mun aldrei gleymast. Sannargjafir.is.

