01. mars 2022

„Ástandið fyrir börn sem föst eru í skotlínu átakanna í Úkraínu versnar með hverri mínútunni“

Spítalar, skólar, vatnsveitur og munaðarleysingjaheimili sætt árásum.

1. mars 2022 „Ástandið fyrir börn sem föst eru í skotlínu átakanna í Úkraínu versnar með hverri mínútunni,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu í dag.

„Við höfum fengið tilkynningar um spítala, skóla, vatnsveitur og munaðarleysingjaheimili sem sætt hafa árásum. Sprengjum er varpað í íbúabyggð og jarðsprengjur á víðavangi frá fyrri tímum ógna sífellt lífi og velferð barna á flótta í Úkraínu,“ segir Russell.

„Börn hafa verið drepin. Börn hafa særst og börn eru í sálrænu áfalli vegna ofbeldisverka allt í kringum þau. Við förum fram á vopnahlé sem myndi gera mannúðarsamtökum kleift að ná til fólks sem er innlyksa eftir fimm daga af loftárásum og stríðsrekstri. Það myndi gera fjölskyldum á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti kleift að sækja sér matvæli og vatn, læknisþjónustu og að yfirgefa átakasvæði í leit að öryggi.“

„Við ítrekum ákall okkar til allra sem að þessu standa að vernda líf óbreyttra borgara og nauðsynlega innviði. Og að virt séu alþjóðalög og siðferðisskyldur um að halda börnum úr skotlínu stríðsátaka. Við verðum að vernda börnin í Úkraínu. NÚNA. Þau þurfa frið.“

UNICEF á Íslandi stendur fyrir neyðarsöfnun vegna umfangsmikilla verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úkraínu þar sem börn og fjölskyldur þurfa tafarlausa aðstoð. Vopnuð átök ógna nú lífi og velferð milljóna barna.

Sendu SMS-ið UNICEF í númerið 1900 til að styrkja um 1.900 kr.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102060 kt. 481203-2950

UNICEF hefur um árabil verið að störfum á ófriðartímum í austurhluta Úkraínu og er á vettvangi að tryggja hreint vatn, heilbrigðisþjónustu, skólagögn, menntun, félagslega sálfræðiþjónustu og fjárhagsaðstoð. UNICEF gefst ekki upp nú þegar neyðin er mest.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn