18. nóvember 2021

Börn vilja orðið, valdið og virðinguna!

Í tilefni alþjóðadags barna vann UNICEF á Íslandi myndband með ungum aðgerðarsinnum á Íslandi, börnum og ungmennum sem hafa tekið þá afstöðu að vera hluti af breytingum til batnaðar í samfélaginu okkar, frekar en að sætta sig við fordóma fyrri tíma.

Þann 20. nóvember er alþjóðadagur barna haldinn hátíðlegur um allan heim þar sem UNICEF brýnir fyrir almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum að gefa börnum orðið því að til þess að við getum í sameiningu unnið að betri heimi þurfa börn að vera virkir þátttakendur í þeirri vegferð. Dagurinn er einnig afmælisdagur Barnasáttmálans, útbreiddasta mannréttindasáttmála heims þar sem segir meðal annars: „Börn eiga rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra. Fullorðnir eiga að hlusta og taka mark á þeim.“

Í tilefni alþjóðadags barna vann UNICEF á Íslandi myndband með ungum aðgerðarsinnum á Íslandi, börnum og ungmennum sem hafa tekið þá afstöðu að vera hluti af breytingum til batnaðar í samfélaginu okkar, frekar en að sætta sig við fordóma fyrri tíma. Nú er að vaxa úr grasi upplýstasta kynslóð barna í sögunni sem hafa hugmyndir um hvernig breyta megi heiminum. Þau vilja orðið, valdið og virðinguna til að tjá skoðanir sínar. Nú er það okkar að hlusta.

Skilaboðin eru skýr: Hlustið á okkur!

UNICEF á Íslandi vann myndbandið með Ungmennaráði UNICEF auk fulltrúa frá Antirasistunum, Menntakerfinu okkar og Eiði Welding, varaformanni CP félagsins. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa upplifað fordóma, fordóma vegna húðlitar síns eða þjóðernis, vegna fötlunar eða að ekki sé tekið mark á þeim eða skoðunum þeirra vegna þess að þau eru börn.

„Við vorum kallaðar skítugar til þess að niðurlægja okkur,“ segja Anna, Valgerður og Kristín hjá Antirasistunum. Þær segja að nú sé tíminn til að fræða og dreifa visku um fjölbreytileikann til næstu kynslóða.

Menntakerfið okkar, hópur fjögurra ungmenna sem vilja uppfæra og betrumbæta íslenska menntakerfið vilja sjá til þess að starfshættir grunnskóla mótist af umburðarlyndi, kærleika, víðsýni og jafnrétti. Þau vilja tortíma fordómum, binda endi á einelti og nútímavæða menntakerfið því fordómar séu fáfræði.

Eiður Welding, varaformaður CP félagsins, sendir þau skilaboð að nú sé tíminn til að sperra eyrun og hlusta, fyrir bætt samfélag. „Hundruð, ef ekki þúsundir fatlaðra barna eru með sterka rödd og hafa mikið að segja en samfélagið hlustar ekki,“ segir Eiður.

„Við upplifum fordóma á hverjum degi fyrir það eitt að vera börn,“ segja fulltrúar í Ungmennaráði UNICEF á Íslandi. „Það er ekki hlustað þegar við segjum frá ofbeldi, þegar við upplifum vanlíðan, þegar við fjöllum um loftlagsmál, gagnrýnum menntakerfið eða þurfum hjálp.“

Börnin hafa fengið orðið og skilaboðin til fullorðinna eru skýr: Ekki verða kynslóðin sem fer í sögubækurnar fyrir að afskrifa skoðanir barna. Verið breytingin sem fer í sögubækurnar fyrir að hlusta á þau!

Myndbandið má horfa á hér og hvetjum við alla til að hlusta og deila þessum mikilvægu skilaboðum sem víðast.

Verkefnið er stutt af áætlun Evrópusambandsins um réttindi, jafnrétti og borgararétt (Rights, Equality and Citizenship Program 2014-2020). Efni myndbandsins er birt á ábyrgð UNICEF á Íslandi og endurspeglar ekki afstöðu eða skoðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn