04. ágúst 2021

Eitt ár liðið frá sprengingunni í Beirút, Líbanon

Samkvæmt könnun sem UNICEF í Líbanon stóð fyrir þurftu sjö af hverjum tíu fjölskyldum á aðstoð að halda eftir sprenginguna í fyrra. 98% þeirra fjölskyldna þurfa enn á aðstoð að halda í dag, ári eftir sprenginguna

Í dag, 4.ágúst, er eitt ár liðið frá mannskæðu sprengingunni sem varð á hafnarsvæðinu í Beirút, höfuðborg Líbanons.  Sprengingin eyðilagði stóran hluta borgarinnar, yfir 200 manns létust, yfir 6500 manns særðust, þar á meðal 1000 börn og 300 þúsund einstaklingar misstu heimili sín. Líf yfir 100 þúsund barna í Beirút var snúið á hvolf á einni nóttu. Börn jafnt sem fullorðnir hafa orðið fyrir gríðarlegu andlegu áfalli og eru margir sem munu bera tilfinningaleg ör til langs tíma.

Hamfarirnar í fyrra kölluðu á umfangsmikla neyðaraðstoð og sýndu einstaklingar, ríkisstjórnir og aðrir aðilar um allan heim mikið örlæti. Hjálparstofnanir a borð við UNICEF fengu liðsstyrk hvaðanæva að úr heiminum en þrátt fyrir mikinn stuðning í kjölfar sprengingarinnar þá ríkir enn mikil neyð í landinu – þar sem ástandið er flókið í Líbanon og margir ólíkir þættir spilast saman. Djúp fjármálakreppa, áhrif Covid-19 heimsfaraldursins, pólitískur óstöðugleiki og eftirmálar sprengingarinnar hefur skilið börn og fjölskyldur eftir í mikilli neyð.

Efnahagskreppan í Líbanon er sú versta í heiminum síðustu 150 ár. Verðbólgan er komin yfir 100% og líbanska líran hefur misst 90% prósent af verðgildi sínu. Verð á matvælum hefur margfaldast og skortur er á matvælum, lyfjum, eldsneyti og öðrum nauðsynjum. Þá hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn í landinu eftir sprenginguna og því hefur enginn gegnsæ og trúverðug rannsókn átt sér stað um hvað gerðist þennan örlagaríka dag í Beirút. Íbúar Líbanons krefjast réttlætis og að þeir sem eigi sök verði refsað fyrir atburðina

Staða barna verri í dag en fyrir ári síðan

„ Frá því að sprengingin varð fyrir ári hefur ástandið í Líbanon versnað með hverjum deginum. Landið glímir við þrefalda krísu: efnahagslega, pólitíska og COVID-19 heimsfaraldurinn. Áhrifin eru gríðarleg og næstum hvert einasta barn í Líbanon er berskjaldað og þarfnast einhverskonar aðstoðar  , "segir Ted Chaiban, svæðisstjóri UNICEF í Miðausturlöndum og Norður-Afríku".

Samkvæmt könnun sem  UNICEF í Líbanon stóð fyrir þurftu sjö af hverjum tíu fjölskyldum á aðstoð að halda eftir sprenginguna í fyrra. 98% þeirra fjölskyldna þurfa enn á aðstoð að halda í dag, ári eftir sprenginguna og þriðjungur barnafjölskyldna segja að minnsta kosti eitt barn á heimilinu sýni enn einkenni andlegrar vanlíðan og áfallastreitu - nærri helmingur fullorðna einstaklinga sýnir enn slík merki. Könnuninn leiddi einnig í ljós að tvær af hverjum þrem fjölskyldum (68,6%) hafa ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum eftir sprenginguna og heimili nær allra fjölskyldna hafi þurft á viðgerðum að halda í kjölfarið. Hægt er að lesa meira um könnunina hér.

UNICEF á vettvangi

Starfsfólk UNICEF í Líbanon var í fremstu víglínu eftir sprenginguna í Beirút og vann með yfirvöldum og samstarfsaðilum að því að bregðast við þeirri miklu neyð sem þar ríkti í kjölfarið. Eftir sprenginguna hefur UNICEF stutt endurbyggingu á vatnsveitukerfum, barnaspítölum og skólum sem skemmdust í sprengingunni. Einnig hefur UNICEF dreift mat og hreinlætisvörum, veitt sálrænan stuðning og veitt þeim allra viðkvæmustu fjárhagsaðstoð (e. cash assistance).

Á sama tíma og gríðarleg neyð ríkir í landinu er möguleiki að ástandið geti versnað til muna. UNICEF hefur varað við vatnsskorti en vatnsveitukerfi í landinu eru á barmi hruns og því hvetur UNICEF til frekari aðgerða í landinu. Hætta er að allt 71% íbúa Líbanon eigi í hættu á að missa aðgang að hreinu, öruggu vatni ef ekki er gripið strax til aðgerða.

UNICEF á Íslandi stóð fyrir neyðarsöfnun til að bregðast við hörmungunum í Beirút og almenningur á Íslandi brást strax við. UNICEF vill þakka þeim fjölmörgu einstaklingum sem lögðu söfnuninni lið, sem og heimsforeldrum en stuðningurinn gerir UNICEF kleift að bregðast við þegar neyðarástand skapast eins og í Líbanon.

Fleiri
fréttir

02. desember 2025

Barnvæn sveitarfélög, betri sveitarfélög?
Lesa meira

28. nóvember 2025

Ofbeldi gegn mæðrum er líka ofbeldi gegn börnum 
Lesa meira

26. nóvember 2025

Fjögur sveitarfélög fá viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga  
Lesa meira
Fara í fréttasafn