11. september 2026

Hættur og hindranir vofa yfir börnum sem snúa nú aftur í skóla á Vesturbakkanum

Tíu palestínsk börn voru drepin á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem, í sumarfríinu milli júní og fyrstu viku september

Ung stúlka á Vesturbakkanum á sumarnámskeiði sem UNICEF styrkir fyrir börn á grunnskólaaldri. Mynd: UNICEF/UN0913122/El Baba 

Rúmlega 830.000 börn snúa aftur í skóla á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem, í þessari viku og hefja nýtt skólaár innan um vaxandi ógnir við rétt þeirra til öryggis og aðgengi að menntun.

Ofbeldi, nauðungarflutningar, ferðatakmarkanir og atvik sem hafa áhrif á skóla og nærsamfélög trufla möguleika þúsunda barna til að komast í skólann og stunda nám á öruggan hátt.

Á fyrri helmingi ársins 2026 skráði Menntaklasinn, samstarfsverkefni UNICEF og fleiri stofnana í þágu menntunar, 224 atvik tengd menntun á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem. Þetta eru atvik í eða við skóla, eða á leiðinni til eða frá skóla. Þessi atvik höfðu bein áhrif á 152 skóla, 20.450 nemendur og 859 skólastarfsmenn á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem.

„Of mörg börn búa við óvissu um hvort þau komist örugglega í skólastofuna, hvort skólinn þeirra verði áfram opinn eða hvort nauðungarflutningar muni neyða þau til að hætta námi,“ sagði Edouard Beigbeder, svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. „Upphaf nýs skólaárs ætti að vera tími spennu og tækifæra í lífi barna. En sum börn eiga ekki afturkvæmt í skóla.“

Tíu palestínsk börn voru drepin á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem, í sumarfríinu milli júní og fyrstu viku september 2026. Auk þess hafa meira en 1.700 palestínsk börn verið flutt nauðungarflutningum frá áramótum vegna ofbeldis landtökumanna, aðgangstakmarkana og niðurrifs á grundvelli stjórnsýsluákvarðana.

Nauðungarflutningar geta ekki aðeins slitið börn frá heimilum sínum, heldur einnig frá skólum sínum, kennurum, vinum og stuðningsneti sem eru nauðsynleg fyrir nám þeirra og velferð. Jafnvel tímabundnar truflanir á menntun geta haft varanlegar afleiðingar, sérstaklega fyrir börn sem þegar búa við langvarandi álag.

UNICEF og samstarfsaðilar á Vesturbakkanum, þar á meðal í Austur-Jerúsalem, veita stuðningskennslu og námsaðstoð, sálfélagslegan stuðning, samgöngur og verndarráðstafanir. UNICEF veitir einnig stuðning með fjárhagsaðstoð tengdri menntun, lögfræðiaðstoð, endurbyggingu skóla og endurheimt öruggs námsumhverfis.

Vernda verður rétt barna til menntunar. Skólar verða að vera öruggir og aðgengilegir og börn og kennarar verða að geta komist þangað án ótta, ofbeldis eða hindrana.

UNICEF kallar eftir vernd allra palestínskra barna, þar á meðal aðgangi að námi. Virða verður alþjóðleg mannréttindalög og alþjóðleg mannúðarlög og vernda verður rétt hvers barns til menntunar og framtíðar.

Fleiri
fréttir

11. september 2026

Hættur og hindranir vofa yfir börnum sem snúa nú aftur í skóla á Vesturbakkanum
Lesa meira

10. september 2026

Loftslagshættur röskuðu námi 170 milljóna nemenda á síðasta ári
Lesa meira

08. september 2026

UNICEF og stjórnvöld í Venesúela hefja endurbætur á vatnsveitukerfum
Lesa meira
Fara í fréttasafn