08. ágúst 2022

Hörmungarástand á Haítí: Næringarskortur ógnar lífi þúsunda barna

Skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu, næringu og vatni vegna aukinna átaka, gríðarlegar verðhækkanir, verðbólga og skortur á matvælaöryggi í Cité Soleil á Haítí gerir það að verkum að eitt af hverjum fimm börnum þar þjáist nú af bráðavannæringu.

Barn í Cité Soleil fær næringarríkt jarðhnetumauk sem UNICEF útvegar. Mynd/UNICEF

Skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu, næringu og vatni vegna aukinna átaka, gríðarlegar verðhækkanir, verðbólga og skortur á matvælaöryggi í Cité Soleil á Haítí gerir það að verkum að eitt af hverjum fimm börnum þar þjáist nú af bráðavannæringu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þar segir að ofbeldisfull átök glæpagengja undanfarin misseri í Cité Soleil, einum af svæðum höfuðborgarinnar Port-au-Prince, hafi víða lokað á aðgengi íbúa að heilbrigðisþjónustu. Vannæring barna er þar mikið vandamál.

Vannærð börn fá ekki hjálp sem þau þurfa

Samkvæmt nýjustu upplýsingum UNICEF þjást um 20 prósent barna undir fimm ára aldri í Cité Soleil að bráðavannæringu. Það er fimm prósentum yfir neyðarviðmiði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

„Við getum ekki setið hjá og horft upp á börn farast úr vannæringu og tengdum kvillum. Þúsundir barna eru í lífshættu þar sem flestar heilsugæslur í nágrenni þeirra eru lokaðar. Ofbeldisverkum í Cité Soleil verður að linna svo vannærð börn geti fengið þá neyðaraðstoð sem þau þurfa sárlega á að halda,“ segir Bruna Maes, fulltrúi UNICEF á Haítí.

Greining á stöðu mála í apríl síðastliðnum sýndi fram á skelfilega næringarstöðu barna á svæðinu. Síðan þá hefur orðið mikil aukning á átökum glæpagengja sem dregið hefur úr aðgengi fólks að grunnþjónustu. Ofan á það og fyrri neyð samfélagsins bætist svo fæðuskortur, verðbólga, verðhækkanir. Allt kemur þetta verst niður á börnunum.

UNICEF leggur sitt af mörkum og kallar eftir frið
UNICEF og heilbrigðisráðuneytið á Haítí hafa unnið að því að dreifa næringarfæði, næringarmjólk og nauðsynlegum lyfjum auk þess að styðja við heilbrigðisstarfsfólk til að auka skimun og þjónustu vegna vannæringarmála. Undanfarið hafa 9.506 börn verið skimuð vegna alvarlegrar vannæringar og nær tvö þúsund börn fengið meðhöndlun.

Um 250 þúsund manns búa í Cité Soleil og á síðustu vikum hafa á 471 látið lífið í átökum glæpagengja, særst eða horfið sporlaust. Þrjú þúsund manns hafa flúið heimili sín, þar á meðal hundruð fylgdarlausra barna.

Frá 20. júlí hefur UNICEF dreift nærri 1 milljón lítra af drykkjarvatni, dreift 500 hreinlætispökkum og sett af stað tvær færanlegar heilsugæslur á svæðinu til að veita íbúum aðgengi að heilbrigðis- og næringarþjónustu.

UNICEF kallar eftir því að stríðandi fylkingar í Cité Soleil láti af ofbeldisverkum sínum til að tryggja saklausum íbúum aðgengi að lífsnauðsynlegri grunnþjónustu.

Fleiri
fréttir

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira
Fara í fréttasafn