01. nóvember 2021

Loftlagsráðstefnan snýst um framtíð milljarða barna

UNICEF hefur verið áberandi á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fram hefur farið í Glasgow í Skotlandi síðustu daga. UNICEF vill tryggja að loftlagskrísan verði viðurkennd sem krísa fyrir framtíð allra barna.

2. nóvember 2021 UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur verið áberandi á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fer nú í Glasgow í Skotlandi. UNICEF vill tryggja að loftlagskrísan verði viðurkennd sem krísa fyrir framtíð allra barna. Um 20 ungir loftslagsaðgerðarsinnar eru staddir á ráðstefnunni á vegum UNICEF, mörg hver frá löndum sem hafa orðið illa úti vegna áhrifa hamfarahlýnunar.

Hamfarahlýnun grefur undan réttindum barna á hverjum einasta degi. Nánast hvert einasta barn í heiminum verður nú fyrir að minnsta kosti einu áfalli af völdum hamfarahlýnunar. Loftmengun, hitabylgjur, vatnsskortur, gróðureldar, flóð og ofsaveður setja börn um allan heim í mikla hættu. Um það bil 1 milljarður barna - næstum helmingur allra barna í heiminum - er mjög berskjaldaður vegna hamfarahlýnunar sem ógnar heilsu þeirra, menntun og öryggi.

„COP26 verður að vera COP fyrir börnin,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Framtíð milljarða barna veltur á því að þjóðarleiðtogar taki afgerandi ákvarðanir um losun gróðurhúsalofttegunda og stýri okkur af þeirri braut sem við erum á núna.“

UNICEF hefur lengi sett umhverfismálin í forgang og birti í ágúst síðastliðnum skýrsluna ‘The Climate Crisis Is a Child Rights Crisis: Introducing the Children’s Climate Risk Index’. Þar kynnti UNICEF í fyrsta sinn sérstakan barnamiðaðan loftslagsáhættustuðull (e. child-focused climate risk index) sem er heildræn greining á þeim áhættum sem steðja að börnum vegna hamfarahlýnunar, unnin út frá sjónarhóli barnsins. Börn bera enga ábyrgð á hækkandi hitastigi á heimsvísu en það eru þau sem munu bera mestan skaða af.

Niðurstöður COP26 loftslagsráðstefnunnar munu móta líf allra barna, nú og í framtíðinni. Börn eiga ekki efni á því að COP26 verði misheppnuð og þess vegna skorar UNICEF á þjóðarleiðtoga og fyrirtæki að tryggja eftirfarandi:

  1. Auka fjárfestingu til loftslagsaðgerða: Til þess að vernda börn, samfélög og þá hópa sem eru viðkæmastir fyrir áhrifum hamfarahlýnunar þá verður að aðlaga mikilvæga þjónustu að þeim breytingum sem eru óhjákvæmilegar, þar á meðal vatns- og hreinlætiskerfi, heilbrigðisþjónustu og skóla. Efnameiri ríki verða að stórauka árleg framlög sín til loftslagsaðgerða og aðlögunar þar sem núverandi loforð eru langt í frá nægileg;
  2. Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda: Til þess að afstýra verstu áhrifum hamfarahlýnunar þarf yfirgripsmiklar og brýnar aðgerðir. Lönd verða að skuldbinda sig til að minnka losun sina um að minnsta kosti 45% fyrir árið 2030 til þess að koma í veg fyrir að hitastig hækki um meira en 1,5 gráður;
  3. Tryggja þátttöku ungmenna í öllum innlendum og alþjóðlegum lofstlagsviðræðum og ákvörðunum, þar með talið á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26). Börn og ungmenni verða að vera þátttakendur í öllum ákörðunum er snúa að loftslagsmálum;
  4. Veita börnum fræðslu um loftslagsmál sem er gagnleg fyrir aðlögun þeirra og undirbúning undir áhrif hamfarahlýnunar. Börn og ungmenni munu þurfa að kljást við hinar hrikalegu afleiðingar hamfarahlýnunar og vatnsóöryggis þó að þau beri minnsta ábyrgð. Okkur ber skylda til að hjálpa öllum börnum og komandi kynslóðum;
  5. Tryggja sjálfbæra og jafna uppbyggingu eftir COVID-19 svo að hæfni komandi kynslóða til að takast á við og bregðast við hamfarahlýnun verði ekki skert.
Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn