11. janúar 2023

Milljónir pakistanskra barna búa enn við mengað vatn eftir hamfaraflóð

Alvarlegt ástand hjá börnum fjórum mánuðum síðar - Vannæring, öndunarfærasjúkdómar og yfirvofandi kuldatíð ógna lífi barna

Hinn 8 ára gamli Sameer og fjölskylda hans ylja sér í þorpinu Zangi Brohi í Pakistan eftir að hafa fengið hlýjan vetrarfatnað og teppi frá UNICEF.

Rúmum fjórum mánuðum eftir að neyðarástandi var lýst yfir í Pakistan vegna fordæmalausra hamfaraflóða lifa fjórar milljónir barna enn við sýkt og mengað vatn sem ógnar heilsu þeirra og velferð.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vekur athygli á því í dag að algjör sprenging hafi orðið í tilfellum alvarlegra öndunarfærasjúkdóma. Þar að auki hefur tilfellum alvarlegrar bráðavannæringar hjá börnum á flóðasvæðunum nær tvöfaldast á tímabilinu júlí til desember 2022 samanborið við sama tímabili árið 2021. UNICEF áætlar að 1,5 milljón barna þurfi á næringaraðstoð að halda.

Vetrarkuldi, vannæring og sjúkdómar

Abdullah Fadil, fulltrúi UNICEF í Pakistan, segir börn á flóðasvæðum á heljarþröm. „Rigningunni hefur slotað en það sama verður ekki sagt um neyðarástand barna í Pakistan. Nær 10 milljónir barna þurfa á tafarlausri mannúðaraðstoð að halda nú þegar veturinn er að koma og þau skortir fullnægjandi húsnæði og skjól. Vannæring, öndunarfærasjúkdómar og vatnsbornir sjúkdómar ofan á yfirvofandi kuldatíð ógna lífi milljóna barna.“

Sem dæmi er tekið að í Jacobabad í suðurhéruðum Pakistan, þar sem fjölskyldur hafa oft lítið annað en þunna dúka í tímabundnum tjöldum til að halda á sér hita við staðnað flóðvatnið, er hitastig komið niður í sjö gráður að nóttu til. Í fjallahéruðum og öðrum hærri svæðum er tekið að snjóa og hitastig víða við og undir frostmarki.

UNICEF er á vettvangi í Pakistan

UNICEF og samstarfsaðilar hafa hafið að dreifa hlýjum vetrarfatnaði með það að markmiði að ná til 200 þúsund barna, og fjölskyldna þeirra. 800 þúsund börn hafa verið skimuð vegna vannæringar og 60 þúsund greind með alvarlega bráðavannæringu. UNICEF hefur náð til 1,5 milljóna íbúa með grunnheilbrigðisþjónustu nú þegar og 4,5 milljónir barna hafa fengið bólusetningu við mænusótt. Í félagi við samstarfsaðila hefur UNICEF einnig tryggt rúmlega milljón manns aðgengi að hreinu drykkjarvatni og dreift öðru eins af hreinlætispökkum. Á komandi mánuðum stefnir UNICEF á að halda áfram nauðsynlegu mannúðarstarfi sínu á flóðasvæðum Pakistan, en sömuleiðis uppbyggingu á þeim innviðum sem glötuðust í hamförunum.

UNICEF biðlar til alþjóðasamfélagsins að auka stuðning sinn til neyðaraðstoðar í Pakistan svo hægt sé að bregðast við brýnum verkefnum og bjarga lífum áður en það verður um seinan.

Sem Heimsforeldri styður þú við verkefni UNICEF í þágu barna um allan heim, meðal annars á flóðasvæðum Pakistan. Gerast Heimsforeldri.

Hin fjögurra ára gamla Fatima stendur fyrir utan tjaldið sitt í þorpinu Zangi Brohi í Pakistan.
Starfsmaður UNICEF í Pakistan gefur hinni sex ára gömlu Shahbaz hlýtt teppi í þorpinu Zangi Brohi í Pakistan.
Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn