12. október 2026

Minnst 15 börn meðal þeirra sem létu lífið þegar bátur fórst undan ströndum Djíbútí

Farandfólk í leit að betra lífi.

Meðfylgjandi er yfirlýsing Etleva Kadilli, svæðisstjóra UNICEF í Austur- og Suður-Afríku, vegna harmleiksins.

„UNICEF harmar mjög að minnst 139 einstaklingar, þar á meðal 15 börn, hafi farist þegar bátur með farandfólki hvolfdi undan ströndum Djíbúatí undir lok síðustu viku.

„Rúmlega 300 farandmenn voru um borð í bátnum og nokkurra enn saknað.

„Hugur okkar er hjá þeim sem komust lífs af og fjölskyldum þeirra sem hafa misst ástvini sína. Við vottum þeim okkar dýpstu samúð.

„Þessi harmleikur minnir okkur með átakanlegum hætti á þær hættur sem farandfólk stendur frammi fyrir þegar það leitar betra lífs og efnahagslegra tækifæra.

„Hann undirstrikar mikilvægi þess að vernda og styðja börn og fjölskyldur svo þau geti ferðast á öruggan hátt án þess að þurfa að leggja líf sitt að veði.

„UNICEF er áfram staðráðið í að vinna með stjórnvöldum í Djíbútí að því að tryggja öryggi og velferð barna á öllum tímum.“

Fleiri
fréttir

12. október 2026

Minnst 15 börn meðal þeirra sem létu lífið þegar bátur fórst undan ströndum Djíbútí
Lesa meira

10. október 2026

Yfirlýsing UNICEF vegna jarðskjálfta í Panama
Lesa meira

09. október 2026

Nepal: Langt í land að ná bata eftir hamfarirnar
Lesa meira
Fara í fréttasafn