10. október 2026

Yfirlýsing UNICEF vegna jarðskjálfta í Panama

UNICEF stendur með börnum, unglingum og fjölskyldum sem hafa orðið fyrir áhrifum af jarðskjálftanum sem reið yfir Kyrrahafsströnd Panama 9. október 2026.

Öflugur jarðskjálfti reið yfir suðurhluta Kyrrahafsstrandar Panama kl. 12:56 að staðartíma. Skjálftinn fannst víða um landið, meðal annars í Panamaborg, og einnig í nágrannaríkinu Kosta Ríka.

Stjórnvöld meta nú áhrif skjálftans og enn er of snemmt að segja til um umfang tjónsins og hvaða afleiðingar hann hefur fyrir börn og fjölskyldur.

UNICEF hefur fyrst og fremst áhyggjur af börnum og fjölskyldum í nágrenni við upptök skjálftans. Jarðskjálftar geta valdið meiðslum á börnum og aðskilið þau frá fjölskyldum sínum. Þeir geta einnig skilið börn og fjölskyldur eftir án húsaskjóls, hreins drykkjarvatns, heilbrigðisþjónustu eða aðgangs að menntun.

UNICEF er reiðubúið að styðja viðbrögð stjórnvalda í Panama ef þörf krefur. Við hvetjum fjölskyldur í Panama og nágrannalöndum til að fylgja fyrirmælum yfirvalda á hverjum stað.

Fleiri
fréttir

12. október 2026

Minnst 15 börn meðal þeirra sem létu lífið þegar bátur fórst undan ströndum Djíbútí
Lesa meira

10. október 2026

Yfirlýsing UNICEF vegna jarðskjálfta í Panama
Lesa meira

09. október 2026

Nepal: Langt í land að ná bata eftir hamfarirnar
Lesa meira
Fara í fréttasafn