13. maí 2022

Rúm hálf milljón í Úkraínusöfnun frá styrktarsýningu Blóðugu kanínunnar

Leikhópurinn Fimbulvetur, í samstarfi við MurMur Productions, Tjarnarbíó og Tix.is gáfu alla innkomu af sýningu leikverksins Blóðuga kanínan þann 1. maí síðastliðinn.

Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikstjóri sýningarinnar, og Sara Martí, framkvæmdastjóri Tjarnarbíó.

Leikhópurinn Fimbulvetur, í samstarfi við MurMur Productions, Tjarnarbíó og Tix.is gáfu alla innkomu af sýningu leikverksins Blóðuga kanínan þann 1. maí síðastliðinn. Í dag komu Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikstjóri sýningarinnar, og Sara Martí, framkvæmdastjóri Tjarnarbíó, og færðu UNICEF á Íslandi 518 þúsund krónur sem renna í neyðarsöfnun samtakanna vegna Úkraínu.  

UNICEF á Íslandi færir öllum sem stóðu að sýningunni hjartans þakkir fyrir stuðninginn. En allir leikarar og aðstandendur sýningarinnar gáfu eftir sýningarlaun sín, leikhúsið gaf eftir sýningatekjur og miðasalinn gaf eftir sína söluprósentu til að tryggja að hver króna sem kom í kassann þetta kvöld rynni óskipt til málefnisins. Kærar þakkir.

Nánar má lesa um Blóðugu kanínuna hér.

Hópmynd af Fimbulvetri eftir sýningu á Blóðugu kanínunni.
Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn