18. mars 2022

UNICEF komið 858 tonnum af hjálpargögnum til Úkraínu og nágrannaríkja

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur nú sent 85 flutningabíla með alls 858 tonnum af hjálpargögnum til Úkraínu og nágrannaríkja vegna stríðsins þar í landi.

18. mars 2022 UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur nú sent 85 flutningabíla með alls 858 tonnum af hjálpargögnum til Úkraínu og nágrannaríkja vegna stríðsins þar í landi. 780 tonn fóru inn í Úkraínu en afgangurinn til nærliggjandi ríkja sem tekið hafa á móti miklum fjölda flóttamanna síðustu vikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF í dag. Þar segir að enn meira sé nú þegar á leiðinni.

Vörubílarnir eru drekkhlaðnir af nauðsynlegum sjúkragögnum, lyfjum og öðru sem skortur hefur orðið á, hreinlætisvörum, skólagögnum og barnvænni afþreyingu fyrir börn og ungmenni. Að ógleymdum hlýjum teppum og vetrarfatnaði, svo fátt eitt sé nefnt.

UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun vegna verkefna UNICEF í og við Úkraínu síðan innrásin hófst. UNICEF hafði þar áður verið að störfum í átta ár á átakasvæðum í austurhluta Úkraínu, en við innrásina þurfti að róa að því öllum árum að bregðast við á vettvangi um allt land og við nærliggjandi landamæri. Stuðningur almennings, fyrirtækja og samstarfsaðila hér á landi við neyðarsöfnunni hefur verið aðdáunarverður og hafa tugir milljóna safnast. Og við erum hvergi nærri hætt.

Líkt og við fjölluðum um nýverið þá eiga Heimsforeldrar UNICEF sömuleiðis mikinn heiður skilið. Mánaðarleg framlög Heimsforeldra tryggja getu UNICEF til að vera til staðar þar sem neyðin er og sveigjanleika til að bregðast skjótt við þegar ófriður og skálmöld skellur á. Rétt eins og kom á daginn í Úkraínu í síðasta mánuði. Íslendingar eiga heimsmet í fjölda Heimsforeldra miðað höfðatölu og telur hvert eitt og einasta framlag til góðra verka UNICEF í þágu réttinda barna um allan heim. Því gleymum ekki að þrátt fyrir það grettistak sem UNICEF hefur að undanförnu lyft í Úkraínu þá er UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, með starfsemi í yfir 190 löndum og er á vettvangi margra stríða. Þar, nær og fjær, skiptir stuðningur þinn máli.

Skráðu þig sem Heimsforeldri UNICEF í dag.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn