19. janúar 2023

Vinsæl fræðsla um börn á flótta og áhrif áfalla

 Markmið fræðslunnar var að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra.

Ríflega sex hundruð manns sóttu fræðslu fyrir kennara um stöðu og réttindi flóttafólks og áhrif áfalla á líðan, heilsu og hegðun barna. Fræðslan var endurtekin tvisvar sinnum, þriðjudaginn 17. janúar og fimmtudaginn 19. janúar. Markmið fræðslunnar var að stuðla að betri skilningi á lífi barna á flótta og kanna hvað kennarar geta gert til þess að styðja við nám og vellíðan þeirra. Kynntar voru hugmyndir að verkfærum og stuðningi sem stendur börnunum til boða. Fræðslan var samstarfsverkefni Barna- og fjölskyldustofu, Kennarasambands Íslands, Rauða krossins og UNICEF á Íslandi, sem ákváðu að taka höndum saman til þess að mæta mikilli eftirspurn skólasamfélagsins eftir fræðslu og stuðningi um málefnið.

Fjöldi barna á flótta á Íslandi hefur aukist hratt á undanförnum árum og árið 2022 varð sérstaklega mikil fjölgun í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Börn á flótta er viðkvæmur hópur sem algengt er að hafi upplifað áföll, og því mikilvægt að umönnunaraðilar þekki helstu einkenni og afleiðingar áfalla á líðan og heilsu barna. Þá er mikilvægt að kennarar og annað starfsfólk skóla geti gripið til gagnlegra verkfæra og leitað eftir stuðningi þegar við á.

Í fræðslunni fór Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi, yfir helstu hugtök sem tengjast börnum á flótta og réttindi barna á flótta. Þá fræddi Sóley Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá Rauða krossinum um orsakir og afleiðingar áfalla og mikilvægi sálfélagslegs stuðnings. Fulltrúar Barna- og fjölskyldustofu, Halla Björk Marteinsdóttir og Elísabet Sigfúsdóttir, kynntu ný lög um samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna og þann stuðning sem kennarar geta sótt vegna barna á flótta. Að lokum deildi Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir, fyrrum deildarstjóri Birtu móttökudeildar, reynslu sinni af kennslu og umönnun barna sem sækja um alþjóðlega vernd.

Almenn ánægja var með fræðsluna og ljóst að mikill áhugi er á málefninu innan skólasamfélagsins, og þörf á meiri stuðningi og stefnumótum varðandi móttöku barna á flótta í skólum landsins.

Hér má sjá glærurnar sem fylgdu fræðslunni.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn